|
|
04.11.2008 16:46:38 / austfjord
Ég var bara að hugsa um hvort þú hafir gleymt mér.
Ég er sjúkdómurinn þinn.
Ég hata fundina, ég hata æðri mátt, ég hata alla sem hafa prógramm.
Skilaboð: allir sem komast í snertingu við mig, óska ykkur kvalar og dauða.
Leyfið mér að kynna mig, ÉG ER SJÚKDÓMURINN FÍKN.
Ég er gráðugur, falskur og sterkur.
Svona er ég, hef drepið manneskjur í milljóna tali og er enn ekki ánægður.
Ég elska að koma þér á óvart.
Ég elska að þykjast vera vinur þinn og huggari.
Ég hef huggað þig, eða hvað ?
Var ég ekki til staðar þegar þú varst einmana ? Þegar þú vildir bara deyja, var það ekki á mig sem þú hrópaðir þá ?
Ég var hjá þér.
Ég elska að láta þér líða illa.
Ég elska að láta þig gráta, eða öllu heldur, að ég fái þig það lokaðann/lokaða tilfinningalega að þú getir hvorki fundið sársauka né grátið.
Þegar þú merkir EKKERT tilfinningalega, þá er ég ánægður.
Allt sem ég bið þig um eru miklar kvalir.
Ég hef ALLTAF verið til staðar fyrir þig, þegar allt gekk vel hjá þér, bauðst þú mér inn í líf þitt.
Var ég ekki sá eini sem hélt með þér ?
Saman eyðilögðum við allt það góða í lífi þínu.
Fólk tekur mig EKKI alvarlega, ekki eins og það tekur heilablæðingu, hjartaáfall, sykursýki o.þ.h HEIMSKINGJAR....ég er SJÚKDÓMUR sem allir hata, en..... ennþá kem ég EKKI óboðinn.
Það ert ÞÚ sem velur að hafa mig.
Það eru svo ótrúlega margir sem hafa valið MIG fram yfir raunverulegt líf, frið og hamingju.
Meira en þú hatar mig, hata ég 12 spora prógrammið, æðri mátt þinn og fundina.
Allt þetta svíkur mig og ég get ekki unnið í friði.
Nú verð ég að hafa mig hægan í bili, þú sérð mig ekki, en.... ÉG ER HÉR.
Þangað til við hittumst aftur, EF við hittumst þá óska ég þér kvala og pínu.
»
13.10.2008 08:21:24 / austfjord
fær bloggið manns enga athygli nema maður bloggi á mbl.is? bara svona spegúleríng... ég er svo vanaföst að ég veit ekki hvort ég geti skipt.. þó svo að ég hafi mjög oft eitthvað útá fréttirnar að segja.. þetta er samt spurning um breyingar.. en ég veit það ekki.. en samt.. en ég veit það ekki... en samt... hmmmmmmm það vantar nú ekkert uppá tölurnar um heimsóknir á þessa síðu mína.. en kommentin segja ekki það sama.. hver ert þú, herra lesandi? spurning um að hafa nafnakall  bless
»
02.10.2008 15:20:55 / austfjord
Þaðersvomikiðaðfréttaaðégveitekkihvarégáaðbyrjaaaa
djók
Hólmgeir brósi minn á afmæli í dag, þessi elska! Ekki nema 12 ár þangað til ég næ aldrinum hans og ekki nema 18 ÁR þangað til ég næ aldrinum hans Ævars sem á einmitt afmæli á næsta mánuði.. og mig minnir að árið 2005 ákvaðum við að fara til Nýja Sjálands í tilefni að stórafmælinu hans! Hvað er að frétta af því Ævar? 
Og talandi um Ævar, haldiði að gamli gráni sé ekki fangavörður í Svörtum Englum? Hann kom fram í 2 sek í síðasta þætti og ég bara missti kúlið úr spenningi! Gerði Elísubetu litlu svo spennta með mér að hún öskraði líka: sáuði sáuði bróðir Heiðdísar??? hehehehe en enginn sá hann nema ég því hann kom bara í 2 sek! En hann á eftir að koma aftur svo fylgist spennt með, hann er þessi grái, hann er alveg að redda þessum þáttum!
En það er HÓLMGEIR SEM Á AFMÆLI OG ÞETTA BLOGG ÁTTI AÐ VERA TIL HEIÐURS HONUM 
Og hey, má ég bara biðja ykkur mjög fallega að vera ekki að hafa í hótunum við starfsfólk Glitnis, sérstaklega ekki gjaldkerum, sérstaklega ekki á Akureyri, og sérstaklega ekki mömmu minni! Því þau hafa ekki gert neitt af sér greyin! Hehe reyndar veit ég ekki um neinar hótanir en það segja fréttirnar og ekki ljúga þær!
En þetta er nú meira ástandið í landinu, og ég er svo fegin að hafa farið í skólann á síðasta ári því ef ég hefði farið núna, hefði reyndar ekkert farið núna því þetta er svo dýrt, þá væri ég að alveg næstum því milljón meira... held 800.000 til að vera nákvæm... og greyið Rúna sem er þarna núna hún er einmitt að því blessunin.
Pabbi sendi mig á námskeiði: Úr mínus í plús  honum finnst ég ekki kunna að fara með peninga?!?!  ......sem ég einmitt kann ekki.. en ég er nu aldeilis búin að læra það núna takk fyrir pent! Og kann helling af fullorðins orðum, eins og verðtryggt lán... og vaxta...bætur? díses ég er svo mikill nilli þegar kemur að þessum peninga málum og bankamálum og öllum orðunum sem fylgja þessu tali að ég veit ekki neitt! Spyr mömmu og Friðrik endalaust til skiptis og þau eru sveitt að svara mér, mamma kemur með bankaútskýringu sem segir mér voða lítið þannig að ég fer beint í Friðrik og hann setur þetta upp fyrir mig á aðeins einfaldari hátt
Og hann er maðurinn sem á að fá verðlaun fyrir að útskýra fyrir mig hvað rangstæða er!! (í fótbolta, ekki bankamalum) því ég hef spurt 100 manns í gegnum árin hvað það sé og reynt að fá útskýringar en aldrei skilið neitt, en nei nei honum tókst þetta!
Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt
Þetta er nú ekki innihaldsríkt blogg frekar en fyrri daginn en maður verður að láta vita af sér, held ég? annars er enginn að fylgjast með manni nema forvitið fólk sem hefur nákvæmlega ekki neitt með það að gera.
En ef það eru ekki allir löngu búnir að þessu þá mæli ég með www.yearbookyourself.com því það ef alveg helvíti fyndið!
Hér er ég til dæmis nákvæmlega eins og móðir mín var í gamla daga.. ef ekki bara eins og ása frænka systir mömmu líka? Dáltið svona glansandi myndin mín eitthvað en þetta er samt fyndið..
Hér er maður svo rosa hipp og kúl! langar alveg smá í svona dú
Maður getur tekist á við hvað sem er með þennan gasalega sveip!
Smá bold and the beautiful
Og svo fyrirmyndar heimavinnandi húsmóðir í kringum 1970
þetta er voða voða gaman.. svona þegar þið getið ekki sofnað og hafið ekkert að gera og eruð búin með internetið... eða þú veist... bara hugmynd...
bless í bili vinimíni
»
10.09.2008 08:51:25 / austfjord
Já langaði bara að segja bless og góða ferð ef það verður heimsendir í dag! Ég er mjög stressuð! Þoli ekki að þessrai frétt um þessa græju þarna þurfi alltaf að fylgja með myndir af því hvernig svarthol gæti myndast og heimurinn farist! Mér finnst þetta mjög óþægilegt! Veit svosem ekkert afhverju.. ef ég þetta verður þá dey ég væntanlega ekki bara ein er það? Nei nei, þið komið öll með! múhahaha Annars er ég bara hérna í nýju vinnunni minni á Bjargi! Já ég þarf að vakna rúmlega 5 á morgnana mán, mið og fös til að mæta spræk í afgreiðsluna kl. 6 og er þar til 9 og fer svo í tíma hálf 10 þannig að þetta er asskoti fínt! Hins vegar skil ég ekki dugnaðinn í fólkinu sem mætir aaaaaalla morgna kl. 6 til að fara á æfingu! Ég hef nú reyndar verið svo fræg að gera það en jesús minn hvað það er ekki tíminn fyrir mig til að vera á fullu! Fyrir hádegi er fínt en ekki rétt eftir miðnætti!! Samt er voða fínt að vera hérna á morgnana.. umkringd skyri og ávöxtum til tilbreytingar  Svo verð ég held ég eitthvað hérna um helgar og svona þannig að þetta er bara voða gott, vantar bara Lísu mína! Það er nú voðalega lítið að frétta nema nýju lögin frá Metallica eru snilld! Ég á ekki til orð, THEY ARE BACK! Þetta minnir bara á gömlu góðu lögin og ég fæ bara gæsahúð! Og vona ég nú að þeir fari að láta sjá sig hérna á klakanum bráðum því þeir lofuðu því hérna 4. júlí 2004, svona sirka um 10 leytið að kvöldi til, að þeir myndu ekki láta líða 22 ár þangað til þeir kæmu aftur!!!! ...þannig að ég bíð og vona.. En týpískt er það að þegar ég er nýfarin frá London þá held ég að þeir séu að spila þar! pffffffff Jæja svo stelpur, ef ykkur vantar förðun, hvaða tilefni sem er, þá vitiði hvert á að leita  848 4387 Og já ég farðaði fyrir draugagönguna sem var á föstudeginum á Menningarvöku, það var helvídi magnað, 20 manns og ég ein! Allir hvítir með bauga og kinnfiskasogin fyrir allan peningin og blóð ef það tók uppá því að skera sig á háls eða púls, jú eða éta kött. Takk í dag bless.
»
23.07.2008 21:34:59 / austfjord
Já margblessaðan! Ég er komin heim! Kom meira að segja 5 dögum fyrr en ég átti og allt planið breyttist. Sunnudaginn, viku áður en ég átti að koma heim, dó Jón pabbi Jóhönnu hans Hólmgeirs bróðis og jarðaförin hans var á laugardeginum sem þau ætluðu að vera úti hjá mér. Og þar sem þau gátu skiljanlega ekki komið út til mín og mamma og pabbi vildu bara á jarðarförina þá ákváðum við bara að fresta ferðinni og gera þetta bara að fríi einhvern tímann seinna. Þannig að fluginu var breytt á mánudeginum og ég var komin heim á þriðjudeginum! Og bara allt í góðu með það, ég þurfti ekkert að vera með á þessari útskrift því að diplómuna sjálfa fæ ég senda heim eftir rúman mánuð og það sem þau fengu á útskriftinni var bara plat diplóma.. bara til að hafa þetta formlegt... og ég var ekkert voðalega fúl að hafa misst af þessu þegar ég sá búningana og hattana! Þvílíkt fáránlegt! En það var ekkert smá erfitt að kveðja vinkonur mínar! Fórum allar út að borða kvöldið áður en ég fór og þær gáfu með risa myndaramma með fullt af myndum af okkur bara síðan við kynntumst og í horninu er lítil kveðja til mín hvað ég er frábær  svo skrifaði Laura besta vinkona mín mér bréf og ég skældi bara og skældi! æi... sætar En svo var nú andskoti gott að koma heim og ég er næstum búin að hitta alla, nema bræður mína, sem ég hitti núna um helgina sem er að koma.. og svo kidda sem kemur um versló... OG Friðrik nokkur sem ákvað að skella sér á sjó bara svona nokkrum dögum áður en ég kom heim.. fallegt af honum... djók, get nú ekki sagt mikið, var það ekki ég sem flutti til London? Einmitt.. hélt það..  Svo er maður bara búin að vera duglegur að djamma síðan maður kom heim, ekkert að því, búin að skemmta mér mjög vel, fyrstu helgina með Björk og seinni helgina með Erlu  Svo eru mærudagar næstu helgi á Húsavík og jafnvel maður kíki þangað! Svo er bara versló og brúðkaup hjá tengdó og smá vinna og svo ætla ég helst ekki að gera neitt!! Er svo bara að auglýsa mig duglega, hvað varðar bransann þið skiljið, ætla að opna heimasíðu og gera nafnspjöld og svona, svo treysti ég á ykkur elsku vinir að benda á mig *blikkblikk* maður er nú reyndar eins og gangandi auglýsing þessar helgar sem ég hef farið út, mála mig alltaf eitthvað aðeins öðruvísi en aðrir, bara svona að tjekka, og hef fengið ófá komment á þessum stutta tíma  etta er svo gaman! Svo bara jafnvel að maður fari að læra hárgreiðslu!  hataði hár svoleiðis í byrjun fyrstu annar að ég ætlaði sko aldrei að koma við hár aftur! En svo lærðum við aðeins að klippa seinustu önnina og það fannst mér nú gaman! Þannig að það er aldrei að vita.. greiddi nú einni um helgina og farðaði þannig að ég er ennþá meira farin að pæla í þessu bara! En eitt í einu.. þið þekkið mig  En hvað segið þið vinir mínir? Have you missed me???  og hey, hver byrjaði á lovelovelove? já ok það var jim carrey í bruce almighty þegar kjellan hans segir love you þá segir hann alltaf lovelovelove... þannig að ég fór að gera það fyrir freeeekar löngu síðan.. og eru ekki bara allir farnir að segja þetta nuna???? haaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa?? ég man að lísa og hjalti hlóu alltaf af mér því ég sagði þetta alltaf... þannig að kannski maður kaupi þetta bara.. einkaréttur? LOVELOVELOVE XXX
»
25.06.2008 12:18:22 / austfjord
Jább, þá er ég búin með skólann! Setti upp allar myndir og allar möppur sem ég þarf að sýna í gær, þetta verður skoðað og metið í dag og á morgun, og svo fæ ég einkunnir sendar eftir 2 vikur og útskrift eftir 2 vikur! Ég er ekki alveg að trúa þessu, en þá er þessi kafli búinn. Og sá næsti tekur við.
Búið að vera ógeðslega mikið að gera, var að farða með Pascal sun og mán fyrir Bollywood mynd, þurftum að farða 40 dansara, vorum 6-8 förðunarfræðingar, það var geðveikt gaman en svo þurftum við að vera þar sem er verið að taka upp myndina, allann daginn þannig að dagurinn var 14-15 tíma langur og maður var alveg ágætlega þreyttur alltaf! Svo var ég að byrja í gærkvöldi að farða fyrir Oliver sýningu í leikhúsi, verð að því fram á sunnudag, þetta er svona áhugamanna leikhús og þau eru alltaf að gera þetta og safna fyrir góðgerðarsamtök.. segir maður það ekki annars? góðgerð allavega 
svo gæti verið að ég sé að fara að farða fyrir þessa bollywood mynd aftur næstu helgi.. og á mánudaginn er ég vonandi komin í frí! maður þarf að verlsa og pakka og græja og svona áður en familían kemur 10. juli þá förum við öll á hótel og höfum það kósý! og svo heim heim 13.juli ... LJÚFT
get ekki beðið eftir að komast heim, litun og plokkun hjá einhverjum sem kann það (Systa), klipping og litun hjá einhverjum sem kann það (Helena), og ljóóóóóóóós já takk, ég er hvít, ekki með klippingu sem ég fíla og varla með augabrúnir.. sæt? uuuu já reyndar alltaf takk fyrir að spurja  Vil svo bara passlega minna á það
hérna í smáa letrinu að ég á afmæli
eftir 2 daga!
Hafið það það ofboðslega kæru vinir
ps. hér er ég http://www.fabulousmag.co.uk/columnists/columnists_new_you_issue_021.php
reyndar segir helv. beljan: What Pascal did... því hún gefur sér ekki tíma til að vita hvað ég heiti því hun er svo merkileg!! hehe.. en svona er þessi heimur! hann sést setja einu sinni á hana varalit eða eð því ég var einhver staðar annars staðar.. ábyggilega að borða!!! en þessi grey kona var svo óheppin eð.. vona að okkur hafi tekist að gera hana eð skárri... en varaliturinn fór alltaf á tennurnar á henni! æi..
»
15.06.2008 22:10:05 / austfjord
fór með pascal aftur að farða fyrir tímaritið og nuna kom nafnið mitt fram   þvílíkur áfangi, ég flissaði alveg þegar ég sá það hehe videoið er hér: http://www.fabulousmag.co.uk/columnists/columnists_new_you_issue_020.phpog nafnið mitt er alveg neðst, en ég farðaði ekki þessa heldur 2 aðrar, sem koma á næstu vikum.. smelli því inn þá! jibbíjibbíjeijeij
»
18.05.2008 13:29:15 / austfjord
var að aðstoða Pascal kennarann minn í djobbi fyrir Fabulous Magazine, vorum að gera make over og ég farðaði þessa  veiii http://www.fabulousmag.co.uk/columnists/columnists_new_you_issue_016.php
»
02.05.2008 17:13:13 / austfjord
Tíminn er svo fljótur að líða að mér er farið að finnast það frekar óeðlilegt! Bara 2 dagar þangað til Björkin mín kemur til mín! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég er spennt, ég er eiginlega hætt að vera svona AA Ó MÆ GOD og núna er ég bara öööööööö... eitthvað voða dofin.. svo fegin.. og glöð.. að eiga bestu vinkonu í heimi.. ekki þú... HAHAHAHA.. djók  En já, þetta verður alveg geggjað, fyrsta kvöldið er alveg planað bara! hehe Á morgun, laugardag, fer ég til Tönju vinkonu og hún ætlar að klippa hárið mitt, segir að hún ætli ekki að láta sjá sig með mér svona! Haha hárið mitt er orðið svo sítt, ég kann ekki að gera neitt við það.. það liggur bara þarna.. eins og dauður köttur á hausnum á mér.. eða þú veist... dökkbrúnn og fjólublár köttur? jájá fínt Allavega.. klipping VÚHÚ! svo bara eitthvað að hanga hjá Tönju og fólkinu sem hún býr með, hún bý með 5 öðrum, í svona uuu vöruskemmu? já, risastór "skúr" þar sem er búið að búa til íbúð, neðri hæðin risastór með eldhúsi stofu og svo hellings plássi sem þau eru með og t.d. er Tanja með smá bás þar sem hún fær kúnna heim til sín að klippa.. svo á efri hæðinni eru 6 herbergi.. mjög töff... myndi samt ekkert sérstaklega vilja búa þarna... en ég meina.. svoooooo á sunnudaginn kl. 13!!! förum við í partý held að það sé úti partý frekar en inní klúbbi, eða þá að það er bæði.. Viðburður sem kallast secret sundaze og byrjar kl.13 um daginn og er til 9 um kvöldið svo eru einhver eftirpartý alveg fram á mánudag! house tónlist og svoleiðis skemmtilegt átti að vera í eða hjá einhveru stúdíói en það breyttist eitthvað þannig að núna verður það fyrir utan Ministry of Sound! Hlakka svo geðveikt til, að djamma frá hádegi fram á kvöld, það er miklu gáfulegra! En ég verð nú bara til svona 18 þar sem ég þarf að fara upp á Standsted flugvöll að sækja Bjööööörk ohh.. þvílík spenna, ég sé það alveg fyrir mér.. ég á eftir að iða alla leiðina uppeftir svo á ég eftir að vera með fiðrildi í maganum og svo þegar ég sé hana á ég eftir að hoppa og skoppa og öskra! JEIJ  Já.. þetta er ábyggilega geggjað skemmtileg blogg.. ég veit.. ég í mínum draumaheimi hvernig þetta á eftir að vera Ætli ég komi svo ekki með áfengi í lestina og við hellum í okkur á leiðinni heim, skilum af okkur draslinu hennar Bjarkar og skellum okkur svo á pöbbarölt hérna í hverfinu mínu, sem ég hef by the way aldrei gert, en nú er einmitt tilvalið að gera allt sem ég hef ekki gert meðan ég hef Björk með mér í ruglið þetta verður meira ævintýrið! aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
Ég veit ekki hvað ég á svosem að blogga um annað, ég er alltof spennt til að tala um eitthvað annað... ugh..
En.. lokaverkfnin eru komin á skrið.. búin að gera stungusár á bakið á Becky vinkonu og let hana liggja á gólfinu á baðherberginu í skólanum, setti blóð á vaskinn eins og hún hefði dottið með hausinn á hann og rotast.. og svo var blóð útum allt og blóðugur hnífur við hliðin á henni.. eins og það hefði verið ráðist á hana þegar hún kom útur sturtu.. eitthvað svoleiðis.. set kannski myndir inn af því.. það var dáltið gaman
Ætla svo að gera Robb sem Heath Ledger sem The Joker.. skiljiði? Það verður gaman líka.. og eitthvað svona meira.. leyfi ykkur að fylgjast með
Gott í bili bara 
Lovelovelove
»
17.04.2008 21:20:46 / austfjord
»
06.04.2008 20:50:28 / austfjord
Já ég var að átta mig á því nú rétt í þessu að ég er ekki búin að reykja síðan 6.apríl á síðasta ári! Ég man að ég var að djamma í Sjallanum á NoRequest kvöldi og ég var svo gríðarlega hress og reykti svona voða voða mikið (mátti reykja inni þarna) að ég dó úr þynnku daginn eftir.. gat ekki hugsað mér að reykja, svo varð ég veik með brjálaða hálsbólgu og gat ekki hugsað mér að reykja þá heldur, og áður en ég vissi voru komnar einhverjar 2 vikur og mér fannst bara heimskulegt að vera að byrja eitthvað aftur þegar ég gat lifað af þennan tíma án þess að reykja, þannig að ég byrjaði bara ekkert aftur!  Jújú mig hefur alveg langað að fá mér stundum og stundum, EN ég man alltaf hvað það er ógeðslega vont að fá sér smók eftir að hafa ekki reykt í langann tíma maður hóstar og hóstar, alveg jafn tilgangslaust og það er þegar maður fær sér sinn allra fyrsta smók og finnst það ógeðslegt og maður hóstar og bragðið er vibbi.. en samt heldur maður áfram! Já ég ætla sko ekki að falla fyrir því aftur! Já ég er bara pínu stolt, viðurkenni það alveg OG ég keypti kort í ræktina í gær og fór í gær og í dag! Ánægð með það líka  En.. fyrir utan þessar góður fréttir  þá fékk ég ennþá betri í morgun Ég var nývöknuð að horfa á Sex and the City (er húkkd, er að horfa á hvern einn og einasta þátt) og þá hringdi síminn og það var hún móðir mín og hún sagði: á ég að segja þér góðar fréttir sem að redda öllu? ég bara æi nei ekki núna djók ég sagði náttla bara já hvað hvað hvað og hún alveg: bræður þínir ætla að koma með okkur út í júlí þegar þú útskriftast til að vera á útskriftinni! og ég fór að skæla. Kemur það einhverjum á óvart? Fyrst bjóst ég ekki við að neinn myndi koma.. svo sögðu mamma og pabbi um jólin að þau ætluðu að koma.. og svo núna ætla Ævar og Hólmgeir og Jóhanna konan hans Hólmgeirs að koma og vera viðstödd! Ég er svo glööööð! Ætlaðist ekki af neinum að koma því ég bara hélt að enginn gæti það, nóg að gera hjá öllum, en nei sko! Allir í fjölskyldunni koma! Guð ég fer bara að skæla aftur! Hlakka svo hlakka svo hlakka svoooo til!!!! Og talandi um að hlakka til.. má ég bara benda á eitt.. maður segir ÉG HLAKKA TIL... ekki MÉR! hlakkar til! Hvað þá, MIG hlakkar til! Hvað er málið? OG OG OG MIG LANGAR ekki ekki ekki ekki MÉR! langar! Ég fæ hroll á bakið þegar ég sé fullorðið fólk eða krakka á mínum aldri skrifa þetta eða segja þetta Hvað klikkaði? Hvað var manni kennt þetta oft? Ég get svo svarið það.. það er svo ljótt að segja þetta og VITLAUST í fyrsta lagi jæja allavega Góðar fréttir og smá tuð  That´s me! Lovelovelove
»
28.03.2008 15:02:39 / austfjord
Já hér er ég, AFTUR orðin lasin, hvað er málið? Var veik frá fimmtudegi til þriðjudags.. svo var ég allt í lagi að ég hélt neinei, kom annars þriðjudagur og mín komin með meiri hálsbólgu og meira kvef og hnerra meira! ooohhh nenni þessu ekki! en ef ég fæ streptukokka eina ferðina enn þá fer ég sjálf persónulega og finn ég meðal svo maður fái þetta ógeð aldrei aldrei aldrei
En inn á milli þess sem ég var ekki lasin fór ég að djamma.. jebb! ég! fyrsta skipti síðan 1.feb! Við Lísa hefðum betur verið heima á fimmtudaginn! Ætluðum þarna á Eric Prydz og John Digweed, komumst svo að því að það var hommaklúbbur.. minnkaði spennuna aðeins.. svo var okkur orðið svo sama hvað við ættum að gera þannig að við fórum á djammið í Croydon, búið að loka staðnum sem við ætluðum á, stóðum í 30mín í röð til að fara á annan í mígandi mígandi mígandi rigningu, komumst loksins inn, ekki spes inni.. fórum út og ætluðum að fá okkur að borða en 2 aumingja töfðu okkur með því að segja okkur að drullast aftur til póllands! HALLÓ! segðu að ég sé ljót og feit en ekki segja að ég sé frá póllandi! þannig að við lentum í slag... jebb.. og þeir hlupu í burtu.. það var mjög fyndið..
En mæli ekki með því samt, flestir geðsjúklingar hérna úti eru með byssur og hnífa, en ekki þessir aumingjar, það sást langar leiðir! hehe..asnalegt
En svo á föstudaginn kom Brynhildur til mín og var hjá mér fram á mánudag, fórum í verslunarferð á oxford street sem fékk mig næstum því til að æla! Á laugardegi! Það er svo ógeðslega viðbjóðslega mikið af fólki og það labbar á þig og utan í þig og ofan á þig og það er öllum svo ógeðslega mikið sama um alla nema sjálfa sig, fyrst var ég voða kurteis og reyndi að færa mig eins og ég gat, svo var ég orðin svo pirruð í lokin að ég labbaði bara í beinni línu og hrinti fólki næstum því! 
Svo á sunnudeginum fórum við Brynhildur og Rob úr skólanum á KOKO klúbb í Camden. Við ætluðum miklu fleiri saman en það var beilað og svo reyndar ætlaði ein með okkur sem vildi svo taka aðra með sér (stelpur úr skólanum) en hún var svo leiðinleg að við sögðum að við ætluðum ekki! haha hvað er maður gamall stundum?!
En það var snilld! Fatahengið var fullt þannig að Rob passaði kápurnar og við Brynhildur stungum af og dönsuðum! Hah! Skemmtilegar.. en það var geggjað!
Steve Angello, Axwell og Sebastian Ingrosso og allir þeirra slagarar! Þegar þeir tóku I Found U og Sweet Dreams kom bara sinfoníu hljómsveit á sviðið með þeim! Það var reyndar geðveikt! Og svo allt í einu spiluðu þeir eitthvað nýtt Eric Prydz lag og sögðu klappiði fyrir vin okkar Eric hann er hérna með okkur! Þá kom kallinn bara á sviðið og veifaði MÉR og öllum hinum, bara á djamminu með þeim! Vúhú! Þannig að það var geggjað
ooog svo varð ég lasin aftur... story of my life
Skólinn byrjar aftur á mánudaginn.. tíminn fer þá að líða eitthvað hraðar loksins
Lærum grunnin í að klippa í 2 vikur, lærum eitthvað meira í casualty þ.e.a.s. skorinn háls, glóðuraugu og allt það.. eitthvað meira í karakter förðun og svona.. en svo verðum við voða mikið í fríi víst, ekki beint fríi en verkefnið á þessari önn er exhibition day, sýnidagur, þar sem við verðum að sýna alla okkur vinnu, allar glósur og myndir og skjöl um vinnu sem við höfum gert allt árið og við fáum semsagt tjekk lista til að gera yfir önnina, þess vegna er fríið, við mætum inn þegar okkur hentar til að gera verkefnin á listanum, hvort sem það er 1940´s förðun, brotið nef o.s.frv.og sýnum svo myndir og þess háttar á þessum degi..
Þetta verður semsagt mikilvægasti dagurinn í skólanum, af því að þetta er einkaskóli sem útskrifar okkur í gegnum Middlesex University þá kemur einhver frá þeim skóla til að meta vinnuna okkar og fá upplýsingar um allt sem við höfum gert... aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
stress
en það verður samt gaman.. er mjög fegin að við þurfum ekki að mæta á hverjum degi í skólann því ég þarf að þýða aaaaallar glósurnar mínar yfir á ensku til að hafa til sýnis þennan eina dag, svo á ég pottþétt aldrei eftir að nota þær aftur, og ég þarf í rauninni líka að hreinskrifa þær allar yfir á íslensku því þær sem ég skrifa í tíma eru bæði enskar og íslenskar því maður er að drífa sig svo að skrifa að það er allt í einhverjum slettum, mjög spes að lesa yfir þær.. en já þannig að það er næg vinna framundan allavega!
En spennandi samt
Jæja þessi blogg mín verða alltaf lengri og lengri og enginn nennir að lesa þau
En þetta var fyrir mömmu, þannig að það er eins gott að hún lesi þetta allt og kvitti fyrir sig!
Og þið líka, öll sem eitt, kvittið fyrir ykkur 
Lovelovelove
»
18.03.2008 15:20:28 / austfjord
Jæja þá er páskafríið gengið í garð, maður er búinn að fá páskaegg sent í pósti ásamt grænum opal og fjólubláum tópas NAMM!! Svo erum við Lísa skvísa vonandi að fara á djammdjamm á miðvikudaginn og svo er djammdjamm með krökkum úr skólanum á sunnudaginn! vúvú og ef þessi djömm ganga upp þá verð ég búin að sjá 5 stóra plötusnúða þegar ég vakna á mánudaginn! hehe jeij John Digweed og Eric Prydz á fimmtudaginn og Axwell, Steve Angello og Sebastian Ingrosso á sunnudaginn vúppvúpp Sjáum svo til hvað ég segi í næsta bloggi, kannski gerði ég ekki rasssss í bala En 2 annir semsagt búnar og bara 1 eftir.. á erfitt með að trúa því hvað þetta er búið að líða hratt miðað við hvað suma daga tíminn virðist standa í stað. Kommentin frá kennurunum fyrir síðustu önn voru mjög mjög góð, sögðu að ég væri skipulögð, leggi mikið í vinnuna mína, snyrtileg, fagmannleg og confident, sem mér fannst best, því ég hef aldrei litið svoleiðis á mig, en gott hrós. Eina sem ég þyrfi að gera væri að slaka á og brosa meira.... uuuu ha? Þekkiði mig eitthvað eða? Nei skil það svosem alveg því þegar ég er að einbeita mér eða þegar ég er stressuð þá er ég ekki mikið í því að brosa og þessar 5 vikur sem fóru í stranga tísku kennslu var lítið annað en stress í boði takk fyrir pent, þannig að ég hef sjálfsagt gert lítið af því að brosa. En þetta var mjög gaman Á prófdaginn okkar fengum við inn módel og svo gátum við farið á lista til að gera annað módel sem var samt ekki dæmt til einkunar, bara gott fyrir okkur að fá 2 myndir í portfolioið okkar, og ég fékk 2 módel, og við áttum bara að farða þær mjög náttúrulega, ekki mikla liti eða crazyness, því miður, en það gekk samt mjög vel og ég fékk hrós fyrir það vúvú Fæ svo myndirnar sjálfsagt einhvern tímann eftir páska Svo standa málin nú þannig að konan sem ég er búin að búa hjá síðan í september er að fara að leigja út allt húsið í einu þannig að ég þarf að flytja út en þar sem það er ekki búið að vera skoðað mjög mikið og bara eitt tilboð sem var dregið til baka hef ég ekki hugmynd hvenær ég þarf að flytja út.. en ég bý semsagt ein í 3ja hæða 4ra herbergja húsi núna, því Bella er flutt til kæró og sagði að ef ég vildi vera lengur þá mætti ég það alveg því það væri gott ef einhver væri að passa húsið, láta sjá að það sé búið hérna.. hehe það er nánast tómt en mér líður svo vel hérna og þetta er bara orðið heimilið mitt! hlakka ekki til að fara úr því já það er svo langt síðan ég hef bloggað maður! ég flutti samt útúr því um daginn.. í 1 sólarhring! Bara í hús hérna neðar í götunni.. gisti eina nótt og fór svo aftur því herbergið mitt lyktaði af einhverju DAUÐU! Lyktin sem var þarna! Ég svaf varla neitt og það voru kóngulær alls staðar og kóngulóavefir og ógeð og myglulykt og viðbjóður! Shit hvað mér leið illa þarna! Hringdi bara skælandi í mömmu og skældi eins og mér einni er lagið! Sagði konunni bara að ég gæti ekki búið þarna.. og fór.. rann og datt í leiðinni og er ennþá marin á löppini en mér er sko alveg sama, gat ekki hugsað mér að búa þarna Og sem dæmi hvað þessi kelling sem á þetta hús er geðveik þá stóð á klósettinu hjá henni, BANNAÐ AÐ STURTA NIÐUR EFTIR MIÐNÆTTI hvað á maður að gera? Skilja miðnætur lollan eftir bara? Leyfa honum að njóta sín? Dell sem bjó hérna með mér býr þarna núna en er samt alltaf hér því kellingin er svo leiðinleg, er t.d. búin að biðja hana að kveikja ekki ljósið inná klósetti því þá fer vifta í gang og býr til svo mikinn hávaða, sérstaklega á kvöldin, spurði hvort hún gæti ekki bara farið í bað án þess að kveikja ljósið og hafa bara opið fram, það labbar enginn framhjá... uuu þau eru svona 5 sem búa þarna? Er allt í gúddí? Og henni fannst þetta vera rosalega mikill hávaði en samt gat hún öskrað útum gluggan kl. 6 að morgni til SHUT UP á HUND SEM VAR AÐ GELTA?!?!?!?!? Þagna hundar ef þeir heyra utanað komandi öskur frá einhverju sem þeir vita ekki hvað er? Nei ég hélt ekki.. og hún öskraði ekki bara einu sinni heldur 4x!!!! En hætti svo þegar hún fattaði að hundurinn var farinn að gelta á hana.. skýr þessi Ég á ekki til eitt aukatekið orð. Ofboðslega fegin bara að búa ekki þarna. En hugsanlega kannski vonandi flyt ég inn til kennarans míns í lok mánaðar! Hah! Pascal heitir hann og er frá Frakklandi og hann er hommalegasti hommi sem ég hef séð og hann elskar sig og talar um sig sem Guð og talar um hvernig heimurinn gæti ekki verið án hans og hann verði að vakna á morgnana og fara fram úr svo heimurinn geti notið hans! hahahahaha hann er aaaalgjör snillingur! Hann býr bara rétt hjá mér hérna og við tókum alltaf sömu lestina á morgnana og hann spurði mig um daginn hvað ég ætlaði að gera um páskana og ég sagði að ég yrði að vera hérna til að flytja út ef skyldi til þess koma að húsið yrði leigt og hann bara já ég er að hugsa um að leigja út herbergi hjá mér láttu mig fá númerið þitt og ég hringi í þegar ég kem heim frá France! Heldur betur, þetta er nú aldeilis búið að vera djókur í skólanum, en innst inni öfunda mig allir því hann er svo fyndinn! hehehe ég hlæ upphátt að hugsa um hann Hann er gráhærður, fer greinilega í ræktina, alltaf voða snyrtilegur, og þegar við erum að farða hvort annað og meðan hann er ekki að fylgjast með okkur er hann alltaf að skoða sig í speglinum og tennurnar sínar líka! Aaaaalltaf að skoða í sér tennurnar! Hann er húmoristi útaf fyrir sig  Jæja þetta er nú bara orðin sögustund hjá mér hérna. Þarf að vinna í ritgerð um páskana og svona gaman Veit ekki hvort ég hafi einhverjar myndir til að bæta við á myndasíðuna en ég skal gera það ef ég get annars set ég inn djamm myndir ef ég fer á djammið  Gleðilega páska og étið þangað til þið verðið ógeðslega feit! Bæjó
»
27.02.2008 23:17:43 / austfjord
Nokkrar nýjar myndir - http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=19045749&uid=9905880það er svo ógeðslega mikið að gera að ég get ekki einu sinni byrjað að segja frá því! en það inniheldur verkefni og flutninga, og flutninga og verkefni, og verkefni og herbergisleit, og verkefni og verkefni og verkefni... En það fer alveg að koma frí og það eru bara 4 mánuðir eftir!!! Hver er að fatta það að ég er búin að vera hérna í 5 mánuði og og á bara eftir 4??? EKKI ÉG!!! Læt vita betur af mér þegar ég hef nægann tíma Einhver sem bíður sig fram í að leggja smá pening í það að hjálpa mér? Þarf sirka 20þúskall til að versla meik og annað þarfaþing um helgina fyrir næstu viku.... aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
»
14.02.2008 17:29:09 / austfjord
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
Heimsóknir
Í dag: 15 Alls: 126968
|